Blómstra | Blómaáskrift

Almennir viðskiptaskilmálar Blómstru

Blómstra er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að gæða heimili lífi með fallegum blómvöndum. Við bjóðum upp á áskriftarþjónustu á blómvöndum þar sem þú getur valið um vikulega, hálfsmánaðarlega og mánaðarlega áskrift. Einnig seljum við staka vendi sem geta komið sér vel einstaka sinnum. Við munum ávallt bjóða upp á ferskustu blóm sem völ er á og fjölbreyttar samsetningar í áskriftarvöndum okkar. Til þess að tryggja gæði blómanna tökum við blómin út úr kæli og útbúum vöndinn sama dag og við afhendum þér blómvöndin. Þetta tryggir lengri líftíma en á þeim blómvöndum sem þú kaupir úti í búð.

Í hverri viku búum við til nýjan vönd sem endurspeglar árstíðirnar og leggjum áherslu á fjölbreytni og fallegan stíl. Hver blómvöndur verður því algjörlega einstakur.

Afhending

Við keyrum sjálf út blómvendina okkar einu sinni í viku. Ef að viðkomandi er ekki heima þá komum við blómvendinum fyrir á umsömdum stað þar sem öruggt er að geyma blómin þar til viðkomandi kemur heim. Í pöntunarferlinu hjá okkur tekur þú fram hvar þú vilt að við leggjum vöndinn ef að þú ert ekki heima þegar við komum í heimsókn.

Fyrirtækið

Blómstra er vörumerki sem er rekið af íslenska fyrirtækinu Blómstrax ehf. (551118-0610). Fyrirtækið rekur enga eiginlega verslun.

Sem stendur er aðeins boðið upp á blómaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Persónuupplýsingar

Ítrasta öryggis og fyllsta trúnaði er heitið við meðferð persónuupplýsinga notenda Blómstra.is. Gögnum um notendur og viðskiptavini verður aldrei deilt þriðja aðila.

Markmið skilmála þessara er að tryggja að meðhöndlun Blómstru á persónuupplýsingum sé í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs, sbr. m.a. ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og ákvæði Persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins, GDPR.

Skilmálar vegna áskriftarþjónustu Blómstru

Binditími áskriftar

Enginn binditími. Þú getur stöðvað áskrift hvenær sem er.

Ljúka áskrift

Til að stöðva áskrift sendirðu okkur tölvupóst á netfangið hallo@blomstra.is og biður um stöðvun á áskrift. Áskrift er þá stöðvuð um hæl.

Greiðslur

Ef þú kýst að ljúka áskrift en búið er að gjaldfæra kortið þitt er útistandandi vöndur alltaf sendur til þín og áskrift telst þá lokið. Kortið er ekki rukkað ef áskrift er hætt áður en gjaldfærsla á sér stað.

Týndur eða skemmdur vöndur

Ef að vöndurinn týnist eða skemmist munum við senda til þín nýjan vönd eða endurgreiða þér að fullu í samráði við þig.

  • 0
  • 0

Karfan þín